

Spænski þjálfarinn Talant Dujshebaev var mjög nálægt því að skrifa undir nýjan samning við pólska stórliðið Industria Kielce áður en samstarfi hans við félagið lauk skyndilega í síðasta mánuði. Samkvæmt erlendum miðlum höfðu viðræður um framlengingu samnings hans við Kielce gengið vel og var Dujshebaev sagður nálægt því að skrifa undir nýjan langtímasamning til ársins 2031. Því komu tíðindin um að hann hætti óvænt mörgum á óvart. Dujshebaev hafði stýrt Kielce frá árinu 2014 og náð góðum árangri, meðal annars unnið Meistaradeild Evrópu árið 2016. Hann hafði verið einn áhrifamesti þjálfari félagsins í sögu þess og gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu liðsins. Nákvæm ástæða skyndilegu uppsagnar hans liggur ekki fyrir. Í viðtali við þýska fjölmiðilinn handball-world sagði Talant Dujshebaev þó að hann hafi vonast til að ljúka löngum og farsælum ferli sínum sem þjálfari í Kielce. ,,Ég vildi upphaflega enda ferilinn minn í Kielce. Við vorum jafnvel á barmi þess að skrifa undir nýjan samning sem framlengdist til ársins 2031. Við ætluðum að skrifa undir í maí,“ segir hann. Dujshebaev tók við sem þjálfari franska landsliðsins á þessu ári og tryggði Frökkum á HM 2027 eftir sigur gegn Tékkum í umspilsleikjum á dögunum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.