
Það liggur fyrir hvaða 30 þjóðir hafa tryggt sér sæti á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári. Enn eru tvö laus sæti á mótið og verða þau úthlutuð af framkvæmdastjórn Alþjóða handknattleikssambandsins. Framkvæmdastjórn IHF mun tilkynna hvaða tvær þjóðir komast inn á mótið sem svokallað "Wild-card" nokkrum dögum áður en dregið verður í riðlanna. Dregið verður í riðla 10. júní í München. Gestgjafar Þjóðverjar eru sjálfkjörnir á mótið ásamt heims- og Evrópumeisturum Dana. Þá hafa Argentína, Brasilía, Chile og Úrúgvæ tryggt sér þátttökurétt frá Suður- og Mið-Ameríku, en Barein, Katar, Kúveit og Japan koma frá Asíu. Frá Afríku verða Alsír, Angóla, Egyptaland, Grænhöfðaeyjar og Túnis meðal þátttökuþjóða. Ísland tryggði sér jafnframt sæti í gegnum Evrópumótið í janúar ásamt Króatíu, Portúgal og Svíþjóð. Bandaríkin verða fulltrúi Norður-Ameríku á mótinu. Tíu þjóðir tryggðu sér sæti í gegnum umspil Evrópu um helgina: Noregur, Færeyjar, Spánn, Grikkland, Pólland, Frakkland, Slóvenía, Serbía, Ítalía og Norður-Makedónía. Riðlakeppni heimsmeistaramótsins verður leikin í fjórum borgum í Þýskalandi. München, Stuttgart, Magdeburg og Kiel en íslenska landsliðið leikur sína leiki í Magdeburg. Milliriðlar fara síðan fram í Hannover og Köln, en Forsetabikarinn verður leikinn í Magdeburg. Allir leikir frá og með átta liða úrslitum fara síðan fram í Köln.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.