Væri gaman að mæta Íslandi en það er alls ekki óskadráttur
Cornelius Poppe / AFP

Valsarnir, Allan Norðberg og Bjarni í Selvindi sem urðu Íslandsmeistarar á dögunum eftir sigur á FH í oddaleik úrslitaeinvígisins voru langt í frá komnir í sumarfrí eftir það einvígi.

Þeirra beið landsliðsverkefni þar sem færeyska landsliðið lék gegn Bosníu í tveimur umspilsleikjum um laust sæti á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári. Það var mikið undir en Færeyjar hafa aldrei áður leikið á heimsmeistaramóti en á því verður breyting í janúar því liðið hafði betur gegn Bosníu í leikjunum tveimur og tryggðu sér þar með farseðilinn á HM 2027.

,,Tilfinningin var mjög góð og gaman að geta fagna þessum árangri með stuðningsmönnunum okkar. Það var algjörlega geggjað að spila seinni leikinn heima í Færeyjum bæði út af því að við erum sterkari á heimavelli og svo þegar við voru búnir að ná markmiðinum okkar þá fengum við að fagna með okkar fólki," sagði hægri hornamaðurinn, Allan Norðberg í samtali við Handkastið.

Allan hefur leikið átta tímabil hér á Íslandi, fyrst með KA en hann hefur síðan leikið þrjú tímabil með Val.

,,Við höfðum alltaf trú fyrir þetta einvígi, við erum komnir með það flott lið Við mætum alltaf vel undirbúnir í alla okkar leiki og tilfinningin var því góð."

Það sem gerir afrek Færeyinga enn stærra er að þeirra allra besti leikmaður síðustu ár, Elias Ellefsen á Skipagøtu leikmaður Kiel gat ekki leikið með liðinu í leikjunum vegna meiðsla sem hafa verið að plaga hann undanfarna mánuði.

,,Elias er einn af okkar bestu leikmönnum en Óli Mittún var að stíga upp fyrir frænda sinn og gerði það svakalega vel. En þetta gaf Pauli Mittún, Bjarna í Selvindi og Rói á Skipagøtu fleiri mínútur inná vellinum."

Dregið verður í riðla fyrir heimsmeistaramótið í München 10. júní. Ísland er í efsta styrkleikaflokki á meðan er í öðrum styrkleika. Væri það óskadráttur fyrir Færeyja að mæta Íslandi í riðlakeppninni?

,,Það væri gaman að fá Ísland en það væri alls ekki óskadráttur. Ég sé okkur eiga betri möguleika á móti Argentínu," sagði Allan Norðberg leikmaður Vals að lokum í samtali við Handkastið.

Hér má sjá styrkleikaflokkana fyrir dráttinn.

Sævar Jónasson

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top