
HSG Wetzlar hefur gengið frá samningi við norska landsliðsmanninn Petter Øverby sem gengur til liðs við félagið í sumar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá þýska handknattleiksfélaginu. Øverby kemur til Wetzlar frá THW Kiel þar sem hann hefur leikið undanfarin ár og unnið fjölda titla. Þar á meðal varð hann þýskur meistari, bikarmeistari og Evrópumeistari með félaginu. Þá hefur hann einnig verið fastamaður í norska landsliðinu um árabil. Í frétt félagsins er Øverby sagður öflug viðbót við varnarlínu liðsins og miklar væntingar bundnar við reynslu hans og leiðtogahæfileika. Forráðamenn félagsins segja hann leikmann sem muni styrkja liðið bæði innan vallar sem utan. Øverby sjálfur sagðist spenntur fyrir nýju verkefni hjá Wetzlar og hlakki til að hitta stuðningsmenn félagsins og hefja undirbúning með liðinu. HSG Wetzlar hefur leikið í efstu deild þýska handboltans frá árinu 1998 en liðið er í mikill fallbaráttu undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar. Þrjár umferðir eru eftir af deildarkeppninni og er liðið sæti fyrir ofan fallsætin með jafn mörg stig og Minden sem er í fallsæti. Leipzig er á botninum með 13 stig en Minden og Wetzlar eru jöfn með 15 stig. Tvö neðstu liðin falla.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.