Fallbaráttan í þýsku Bundesligunni í handbolta er að ná hámarki þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir af tímabilinu. Nokkur lið eru enn í hættu á að falla úr efstu deild og ljóst að spennan verður mikil allt fram á lokadag tímabilsins. Tvö neðstu liðin í deildinni falla niður í næst efstu deild. Af þeim fimm liðum sem geta fallið úr deildinni er Íslandstengingar við fjögur af þeim en Minden er eina félagið sem hvorki hefur íslenskan leikmann eða íslenskan þjálfara innanborðs. SC DHfK Leipzig lið Blæs Hinrikssonar er neðst með 13 stig, en þar fyrir ofan eru TSV GWD Minden og HSG Wetzlar þar sem Rúnar Sigtryggsson stýrir skútunni með 15 stig hvort lið. Þá er Bergischer HC í 15. sæti með 18 stig og er enn ekki öruggt með sæti sitt í deildinni, Arnór Þór Gunnarsson er einn af þjálfurum liðsins. HC Erlangen er einnig ekki alveg sloppið með 19 stig en þar leika Viggó Kristjánsson og Andri Már Rúnarsson. Staðan í botnbaráttunni er því þessi: HSG Wetzlar á meðal annars eftir erfiða leiki gegn liðum úr efri hluta deildarinnar og þarf líklega að vinna að minnsta kosti tvo af síðustu leikjum sínum til að eiga raunhæfa möguleika á að bjarga sér. GWD Minden á sömuleiðis eftir mikilvæga botnslagaleiki, þar á meðal gegn Bergischer HC í leik sem gæti ráðið úrslitum um hvort liðanna heldur sæti sínu. SC DHfK Leipzig er í verstu stöðunni og má vart misstíga sig oftar. Liðið hefur aðeins unnið þrjá leiki í vetur og þarf nær fullkominn endasprett til að halda sér uppi. Liðið fær MT Melsungen í heimsókn á heimavelli í dag klukkan 17:00. Bergischer HC og HC Erlangen eru í örlítið betri stöðu, en bæði lið eiga þó eftir erfiða leiki gegn liðum sem berjast annað hvort um Evrópusæti eða áframhaldandi veru í deildinni. Bergischer á eftir að mæta Kiel, Erlangen og Göppingen. Erlangen á eftir að mæta Wetzlar, Bergischer og loks Stuttgart í lokaumferðinni. Tapi Erlangen stigum gegn bæði Wetzlar og Bergischer gæti liðið verið í alvarlegum málum fyrir lokaumferðina.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.