
Undanúrslitin um danska meistaratitilinn hófst í gær þegar Skanderborg hafði betur gegn GOG 38-35 eftir framlengdan leik og í Álaborg unnu heimamenn 19 marka sigur gegn Mors-Thy 40-21. Með þeim sigri sló Álaborg met í Danmörku því aldrei áður í sögu úrslitakeppninnar í Danmörku hefur lið unnið svo stóran sigur í undanúrslitum keppninnar. Álaborg stendur vel að vígi fyrir annan leik liðanna sem fram fer á laugardaginn en vinna þarf tvo leiki til að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu. Felix Möller var markahæstur í liði Álaborgar með sex mörk en tólf leikmenn Álaborgar skoruðu í leiknum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.