Norðurlöndin: Sävehof einum sigri frá titlinum
Savehof

Það var einn leikur á dagskrá í Svíþjóð í kvöld en þá fór fram annar úrslitaleikur Skara og Sävehof sem mættust í Skara í kvöld.

Gestirnir leiddu 1-0 eftir góðan sigur á heimavelli á mánudagskvöldið og þær reyndust einnig sterkari í kvöld og unnu góðan þriggja marka sigur, 27-30. Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði fjögur mörk úr átta skotum, gaf eina stoðsendingu og fékk að auki eina brottvísun.

Í liði Skara klikkaði Lena Margrét Valdimarsdóttir á báðum skotum sínum en gaf þó tvær stoðsendingar. Staðan í einvíginu er því orðin 2-0 fyrir Sävehof og liðið getur tryggt sér titilinn með sigri á sunnudaginn á heimavelli sínum, Partille Arena klukkan 14:30 á íslenskum tíma.

Úrslit kvöldsins:

Skara 27-30 Sävehof

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top