Tveir leikir áttu sér stað í dag er 32. umferð þýsku úrvalsdeildarinnar var leikin. Fyrsti leikur dagsins var á milli Wetzlar og Erlangan, og var leikurinn mjög jafn og spennandi lengst af. Í fyrri hálfleik skiptust liðin á að hafa forystuna en staðan í hálfleik var 14–12 fyrir Wetzlar. Í seinni hálfleik náði Wetzlar smám saman tökum á leiknum með sterkum kafla um miðjan seinni hálfleik þar sem þeir komust mest sex mörkum yfir, 24–18. Erlangen gafst þó ekki upp og minnkaði muninn niður í tvö mörk undir lokin. Wetzlar hélt þó haus og tryggði sér að lokum 29–26 sigur. Atkvæðemsti leikmaður vallarins var Philipp Ahouansou í liði Wetzlar með 8 mörk og 2 stoðsendingar. Seinni leikur dagsins var er Gummersbach tók á móti Minden í Schwalbe Arena. Leikurinn á milli VfL Leikurinn byrjaði nokkuð jafnt, þar sem liðin skiptust á mörkum fyrstu mínúturnar. Þegar leið á fyrri hálfleikinn tók Gummersbach hins vegar yfir leikinn með sterkum varnarleik og hröðum sóknum. Þeir gengu tik búningsherbergja með gott forskot 19–12. Í seinni hálfleik hélt Gummersbach áfram að stjórna leiknum og jók forskotið jafnt og þétt. Minden átti erfitt með að svara sóknarleik heimamanna, sérstaklega þegar Teitur Örn Einarsson kveikti í sér og skoraði nokkur mörk í röð undir lok leiks. Gummersbach sigldi því öruggum 32–22 sigri í höfn eftir mjög sterkan seinni hálfleik. Teitur Örn skoraði 7 mörk í leiknum. Úrslit dagsins: Wetzlar-Erlangan 29-26 Gummersbach-Minden 32-22

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.