Óðinn Þór og Sigvaldi með helgarnámskeið í sumar
JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP

Íslensku landsliðsmennirnir, Óðinn Þór Ríkharðsson og Sigvaldi Björn Guðjónsson ætla að vera með helgarnámskeið í sumar, annað sumarið í röð í samvinnu með Handboltaskóla Framtíðarinnar.

,,Þeir félagar ætla miðla reynslu sinni og þekkingu til ungra og efnilegra leikmanna sem vilja bæta leik sinn á þessu þriggja daga tækninámskeiði," segir í auglýsingunni um námskeiðið.

Skráning hér.

Tvö námskeið verða í boði fyrir stráka og stelpur. Sumarnámskeið Óðins og Sigvalda er fyrir stráka og stelpur fædd árin 2010-2012 og þá verður einnig Sumarnámskeið Handboltaskóla Framtíðarinnar fyrir 2013-2014 þar sem landsliðsmenn og konur verða gestaþjálfarar.

Meðal gestaþjálfara sem koma á námskeiðin eru Orri Freyr Þorkelsson, Þorsteinn Leó Gunnarsson og Sandra Erlingsdóttir. Ágúst Elí Björgvinsson sér um markmannsþjálfun á námskeiðinu.

Gera má ráð fyrir að nöfn fleiri landsliðsmanna bætist við á næstu dögum.

Námskeiðið fer fram helgina 19. - 21. júní.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top