Norðurlöndin: Kristianstad einum sigri frá titlinum
Kristianstad

Kristianstad er komið í 2-1 forystu gegn Malmö eftir sigur liðsins á heimavelli í kvöld. Lokatölur urðu 34-29 fyrir heimamenn sem geta núna tryggt sér titilinn með sigri í fjórða leik liðsins sem fram fer á föstudagskvöldið næstkomandi í Malmö.

Einar Bragi Aðalsteinsson átti flottan leik fyrir heimamenn en hann skoraði átta mörk úr tólf skotum og var samkvæmt einkunnagjöf sænsku deildarinnar næstbesti leikmaður liðsins.

Ef Kristianstad klára titilinn verða þeir þriðja sænska liðið til að verða sænskir meistarar tíu sinnum eða oftar á eftir Redbergslid sem eiga tuttugu titla og Drott sem hafa unnið deildina ellefu sinnum.

Úrslit kvöldsins:

Kristianstad 34-29 Malmö

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top