Hákon Daði semur við Aftureldingu



Hornamaðurinn öflugi Hákon Daði Styrmisson hefur skrifað undir samning við Aftureldingu og leikur með Mosfellingum næstu þrjú árin hið minnsta. Hákon Daði kemur frá ÍBV en hann lék með Eyjamönnum seinni hluta tímabilsins þar sem hann skoraði 41 mark í 6 leikjum. Þar á undan lék hann með Hagen í Bundesligu 2 og Gummersbach. Hákon Daði er uppalinn Eyjamaður en hefur einnig leikið með Haukum hér á landi.

Handkastið greindi frá því í morgun að Hákon væri á leið í Afturelding og nú hefur félagið staðfest fréttirnar.

Fréttatilkynningu Aftureldingar má sjá hér að neðan:

Hákon Daði til Aftureldingar!

Það gleður okkur að tilkynna það að Hákon Daði Stymirsson hefur skrifað undir 3 ára samning við Handknattleiksdeild Aftureldingar. Hákon Daði kemur til okkar frá ÍBV en hann skoraði 41 mark í 6 leikjum á tímabilinu en hann kom um áramótin frá Hagen í þýsku B-deildinni. Þar áður lék Hákon með Gummersbach en hann hefur einnig leikið með Haukum á Íslandi. Hákon hefur áður leikið með Íslenska landsliðinu og fór m.a með liðinu út til Svíþjóðar á HM í handbolta 2023. Við erum gífurlega stolt að Hákon hafi ákveðið að semja við Aftureldingu og erum spennt fyrir því að sjá hann í rauðu treyjunni á næsta tímabili.

Velkominn Hákon!

Áfram Afturelding!

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top