

Aron Pálmarsson var í gær kynntur sem nýr þjálfari karlaliðs FH og tekur við liðinu af Sigursteini Arndal sem verður aðstoðarþjálfari liðsins. Í löngu viðtali Handkastsins við Aron Pálmarsson á blaðamannafundinum sem FH hélt í gær þegar Aron var kynntur staðfesti Aron þær sögusagnir sem Handkastið greindi frá, á sínum tíma að Aron Pálmarsson hafi sagt nei við Aftureldingu. Aron Pálmarsson sagði nei við Aftureldingu ,,Auðvitað vildi ég ekkert fara neitt annað en það var samt alveg möguleiki á því. Ef Steini hefði viljað halda áfram þá hefði ég skoðað aðra kosti. Það sýnir virðinguna hjá Steina að gefa mér þetta tækifæri," sagði Aron í viðtali við Handkastið. En fékk hann símtal frá Aftureldingu? ,,Ég get alveg viðurkennt það að það voru einhverjar smá viðræður. En samræður mínar við FH voru langt komnar á þeim tímapunkti en við getum orðað það þannig að ef þetta hefði dregist í mánuð í viðbót þá hefði ég opnað á fleiri möguleika.” Hægt er að hlusta á viðtalið við Aron Pálmarsson í spilaranum hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.