Er spenntur fyrir nýju fyrirkomulagi á úrslitakeppninni
Baldur Þorgilsson

Á 69. ársþingi HSÍ sem haldið var í síðasta mánuði varð það ljóst að úrslitakeppnin bæði í Olís-deild karla og kvenna verður með breyttu sniði á næstu leiktíð.

Í stað hefðbundinnar 8-liða úrslita verður farið í tvo fjögurra liða riðla þar sem öll lið leika heima og heiman. Tvö efstu liðin úr riðlunum tveimur fara síðan í undanúrslit og síðan úrslitaeinvígi. Tvö efstu lið Olís-deildarinnar hefja riðlakeppnina með tvö stig, liðin í 3. og 4. sæti með eitt stig og hin hefja leik án stiga.

Ágúst Þór Jóhannsson margfaldur Íslandsmeistari bæði með karla og kvennalið Vals undanfarin ár var gestur í nýjasta þætti Handkastsins og var spurður út í hans skoðun á þessari breytingu.

,,Ég hef fylgst með þessu í Danmörku og mér líst mjög vel á þetta. Við fáum fleiri leiki og ég held að þetta væri mjög gott. Við fáum fleiri alvöru leiki og síðan fáum við alvöru undanúrslit og síðan úrslitaeinvígi. Ég er mjög spenntur fyrir þessu.”

Hann var spurður að því hvort hann haldi að þetta fyrirkomulag geti gefið veikari liðunum meira tækifæri eða gefa betri liðunum tækifæri til að slaka aðeins á.

,,Ég held að veikari liðin eigi aðeins meiri möguleika. Ég hef það á tilfinningunni að þó að þú sért búinn með tvo leiki í úrslitakeppninni þá ertu enn á lífi og margt sem þú getur eyðilagt fyrir öðrum. Mér líst vel á þetta og ég hef mikla trú á þessu. Ég kaus með því að breyta þessu og prófa þetta.”

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top