Britney Cots hefur skrifað undir tveggja ára samning við Íslands, deildar- og bikarmeistara Vals. Britney gengur í raðir Vals frá ÍBV. Britney var lykilmaður varnarlega hjá ÍBV í vetur sem endaði í 2.sæti bæði í Olís-deildinni og í úrslitakeppninni. Britney gekk í raðir ÍBV frá Stjörnunni sumarið 2023 og var því að klára sitt þriðja tímabil með ÍBV. Cots hefur leikið hér á landi síðan árið 2018 og en hún lék þrjú tímabil með FH áður en hún skipti yfir til Stjörnunnar sumarið 2021. ,,Ég er gríðarlega ánægður með að fá Britney til liðs við félagið. Hún kemur inn í hópinn með mikla reynslu og gæði sem mun nýtast liðinu vel á komandi tímabili. Ég er spenntur fyrir samstarfinu og mun hún passa vel inn í okkar hóp,“ sagði Anton Rúnarsson þjálfari kvennaliðs félagsins. Britney er fyrsti leikmaðurinn sem gengur í raðir Vals eftir að Anton Rúnarsson tók við liðinu fyrir rúmlega ári síðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.