U16 og U15 ára landslið Íslands unnu alla fjóra vináttulandsleiki sína gegn Færeyjum, ytra um helgina. Handkastið greindi frá tveimur sigrum á laugardaginn. Íslensku drengja landsliðin höfðu betur í Færeyjum Bæði liðin unnu síðan einnig leiki sína á sunnudaginn. U16 ára liðið vann sannfærandi sigur 31-26 eftir að hafa leitt 17-13 í hálfleik. Þá vann U15 ára lið Íslands 31-24 sigur eftir að hafa leitt 15-12 í hálfleik þrátt fyrir að Færeyingar hafi byrjað leikinn betur. Markaskorarar U16 ára landsliðs Íslands: Brynjar Narfi Arndal 9 mörk, Jakob Már Kjartansson 4 mörk, Einar Breki Olsen og Mikael Hrafn Loftsson 3 mörk hvor, Bjartur Fritz Bjarnason, Ingi Þór Sveinsson, Sveinn Ísak Hauksson og Guðmundur Levý Hreiðarsson 2 mörk hver og Alexander Jökull Hjaltason, Matthías Sigurðsson, Kári Einarsson og Fannar Ingi Gunnarsson 1 mark hver. Stefán Örn Runólfsson varði 8 skot og Róbert Huldar Hákonarson varði 2 skot. Markaskorarar U15 ára landsliðs Íslands: Stefán Hrafn Högnason 6 mörk, Gabríel Fannar Ólafsson 5 mörk, Ólafur Eldur Ólafsson 4 mörk, Fannar Breki Vilhjálmsson 3 mörk, Daníel Hilmar Hilmarsson 3 mörk, Kári Björn Guðjónsson 3 mörk, Brynjar Björnsson 2 mörk, Viðar Breki Davíðsson 2 mörk, Tómas Kristjánsson 1 mark, Gunnar Björn Ólafsson 1 mark. Heiðar Berg Brynjarsson varði 11 skot og Andri Árnason varði 10 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.