Tillaga frá ÍBV um breytingu á 24. grein laga Handknattleikssambands Íslands (HSÍ) sem breytt var í ályktun til stjórnar HSÍ úr lagabreytingu af Laga- og Allsherjarnefnd þingsins þar sem ÍBV dró lagabreytingu til baka og breytti í ályktun til stjórnar var samþykkt með miklum meirihluta á 69. ársþingi HSÍ sem fram fór í Virkinu í Safamýri í byrjun maí. Ályktunin fól í sér að ný málsgrein bætist við 24. grein laga þar sem kveðið er á um að þjálfarar sem starfa með A-landsliðum og U21-landsliðum Íslands megi ekki á sama tíma vera starfandi þjálfarar eða hluti af þjálfarateymi íslenskra félagsliða. Stjórn HSÍ var falið það verkefni að breyta 24. grein laga HSÍ. Einungis fimm mótatkvæði bárust. Í nýjasta þætti Handkastsins var Ágúst Jóhannsson þjálfari karlaliðs Vals spurður út í þetta mál en hann er einnig starfandi þjálfari U20 ára landsliðs karla. ,,Við getum eiginlega ekki sleppt þér, fyrst við vorum að ræða Bessa Teitsson og þetta hefur verið smá hitamál. Það vakti athygli margra að ÍBV kom með tillögu á ársþingi HSÍ þar sem ÍBV vildu breytingar á lögum HSÍ varðandi yngri landsliðsþjálfara og A-landsliðsþjálfara að þjálfarar sem væru að þjálfa hjá félagsliðum færu burt. Þú ert þjálfari U20 ára landsliðsins, hver er þín skoðun á þessu?” spurði Arnar Daði Arnarsson, Ágúst Jóhannsson. HSÍ STENDUR FRAMMI FYRIR UMFANGSMIKLUM BREYTINGUM Á ÞJÁLFARATEYMUM LANDSLIÐA ,,Fyrir mér er þetta þannig að ég held að í hinum fullkomna heimi þá væri frábært að það væru bara þjálfarar sem væru bara að þjálfa landsliðin ef það væri mögulegt og HSÍ væri að greiða þannig laun. Það væri frábært en það er ekki staðan eins og hún er hér á landi. Ég held að við séum erum að þjálfa þessi yngri landslið og erum að þjálfa hjá félagsliðunum mættum ekki þjálfa á báðum stöðum þá er ég ekki viss um að við gætum manna þetta allt saman.” ,,Mér grunar að fólk hafi ekki almennilega kynnt sér þetta. Ég held að menn hafi ekki hugsað málið alveg til enda," sagði Ágúst áður en Arnar Daði greip inní. ,,Þetta lá samt fyrir vikur fyrir þingið og félögin voru búin að mynda sér skoðun á þessu. Ég held að 90% af þeim sem kusu með þessari breytingu gátu staðið með því á þessum tímapunkti. En hversu mikil pæling var á bakvið það er síðan annað mál. Kristinn Björgúlfsson starfandi unglingalandsliðsþjálfari kaus með þessari breytingu. Þessi tillaga kemur frá Erlingi Richardssyni sem er ekki steik, eða maður hefði haldið það. Þetta er ekki að koma frá einhverjum Sigga bónda í Öræfum.” ,,Ég virði það við fólk ef fólk er á þeirri skoðun. Ég er ekkert ósammála því að það væri best að hafa sérþjálfara. Ég átta mig ekki á því hvað býr að baki, þú nefndir Bessa í þessu tilfelli sem ég er að þjálfa í U20 ára landsliðinu. Við vorum búnir að spotta Bessa fyrir löngu, löngu síðan og síðan þegar við höfðum heimild til að tala við hann þá gerðum við það. Við fórum algjörlega eftir reglum HSí varðandi þessi félagaskipti og hvenær þú mátt tala við leikmenn. Ég passa mig að blanda aldrei saman þessari landsliðsþjálfun og félagsliðum. Á endanum ertu dæmdur á þínum árangri og því sem þú ert að gera. Ég passa mig að vera eins faglegur og ég er en auðvitað er alltaf hægt að benda á einhver atriði. En á endanum held ég að þetta snúist um það að við erum ekki með nægilega marga þjálfara til þess að taka þessi landslið ef félags þjálfarar mega ekki vera í þessu.” Enn er beðið eftir því að HSÍ skili frá sér lagabreytingunni en það verður fróðlegt að sjá hvaða leið HSÍ fer í þessu máli en margir virðast hafa miklar skoðanir á.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.