HSÍ stendur frammi fyrir umfangsmiklum breytingum á þjálfarateymum landsliða
Sævar Jónasson

Tillaga frá ÍBV um breytingu á 24. grein laga Handknattleikssambands Íslands (HSÍ) var samþykkt með miklum meirihluta á 69. ársþingi sambandsins, sem fram fór í Virkinu í Safamýri í gær. Fimm mótatkvæði bárust.

Breytingin felur í sér að ný málsgrein bætist við greinina, þar sem kveðið er á um að þjálfarar sem starfa með A-landsliðum og U21-landsliðum Íslands megi ekki á sama tíma vera starfandi þjálfarar eða hluti af þjálfarateymi íslenskra félagsliða.

„Þjálfarar sem starfa með A-landsliðum og U21-landsliðum Íslands skulu ekki á sama tíma vera starfandi þjálfarar eða hluti af þjálfarateymi íslenskra félagsliða.“

Í greinargerð með tillögunni kemur fram að markmiðið sé að draga úr mögulegum hagsmunaárekstrum og tryggja gagnsæi og jafnræði milli félaga þegar kemur að vali og undirbúningi landsliða.

Lagabreytingin hefur víðtæk áhrif á núverandi þjálfarateymi landsliða Íslands. Þar má meðal annars nefna að Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla, mun ekki lengur geta sinnt þjálfun yngri flokka Vals samhliða starfi sínu með landsliðinu en hann hefur verið í þjálfarateymi 3.flokks karla og venslalið Vals, Val 2 í Grill66-deildinni í vetur.

Einnig verður Óskar Bjarni Óskarsson, aðstoðarþjálfari kvenna landsliðsins, að láta af störfum hjá Val ef hann hyggst halda áfram í landsliðsstarfinu en hann hefur verið í þjálfun hjá Val til margra ára samhliða því að vera í þjálfarateymum bæði karla og kvennalandsliðsins undanfarin ár.

Þá hefur Hrannar Guðmundsson verið hluti af þjálfarateymi A-landsliðs karla á síðustu stórmótum samhliða því að þjálfa Stjörnuna, en hann hefur verið sterklega orðaður við starfið hjá Aftureldingu en eftir breytingar á lögum HSÍ mun hann þurfa að velja á milli.

Sama staða kemur upp hjá markmannsþjálfurum landsliðanna, þeim Roland Eradze og Hlyn Morthens, sem gegna báðir veigamiklum hlutverkum hjá félagsliðum samhliða landsliðsstörfum. Roland er starfandi þjálfari hjá Fram á meðan Hlynur er hjá Val.

Áhrifin ná einnig til yngri landsliða. Ágúst Jóhannsson, þjálfari U21 árs landsliðs karla og jafnframt þjálfari Íslandsmeistara Vals, stendur frammi fyrir sömu stöðu, en framundan er Evrópumót hjá liðinu. Þá er Jóhann Ingi Guðmundsson markmannsþjálfari U21 landsliðsins einnig starfandi hjá Val, sem nú samræmist ekki nýjum reglum.

Ljóst er að HSÍ stendur frammi fyrir umfangsmiklum breytingum á þjálfarateymum landsliða sinna á næstunni, í kjölfar þessarar lagabreytingar sem markar tímamót í skipulagi landsliðsmála hér á landi.

Setur undirritaður stórt spurningarmerki við samþykkt þessara laga og veltir fyrir sér hvort þetta sé í raun handboltanum á Íslandi til heilla. Nógu erfitt hefur reynst fyrir félagslið hér á landi að manna þjálfun bæði á meistaraflokksliðum og hvað þá yngri flokkum. Það verður ekki auðveldara með þessari lagabreytingu. Eins veltir maður fyrir sér hvort þetta muni hafa slæm áhrif á þjálfarateymi íslensku landsliðanna sem um ræðir - enda verður að teljast ólíklegt að allir þjálfarnir hér að neðan velji það frekar að vera áfram hluti af þjálfarateymum landsliðanna í stað þeirra starfa sem þeir/þau eru í, hjá félagsliðunum.

Þjálfarar A og U21 árs landsliðs Íslands:

A-landslið karla:
Snorri Steinn Guðjónsson - Starfar fyrir íslenskt félagslið
Arnór Atlason
Roland Valur Eradze - Starfar fyrir íslenskt félagslið
Óskar Bjarni Óskarsson - Starfar fyrir íslenskt félagslið
Hrannar Guðmundsson

A-landslið kvenna:
Arnar Pétursson
Óskar Bjarni Óskarsson - Starfar fyrir íslenskt félagslið
Hlynur Morthens - Starfar fyrir íslenskt félagslið

U-20 ára landslið karla:
Ágúst Þór Jóhannsson - Starfar fyrir íslenskt félagslið
Maksim Akbachev
Jóhann Ingi Guðmundsson - Starfar fyrir íslenskt félagslið

U-20 landslið kvenna:
Halldór Stefán Haraldsson - Framkvæmdastjóri Selfoss og fellur því ekki undir nýju lögin.
Þjálfarateymi Halldórs hefur aldrei verið opinberað.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top