Dagur Árni Heimisson kom á dögunum aftur heim í KA eftir eins árs dvöl hjá Íslands- og deildarmeisturum Vals. Dagur Árni var keyptur til Vals frá KA á metfé síðasta sumar en tímabilið einkenndist af meiðslum hjá þessum gríðarlega efnilega leikmanni og kom til að mynda aðeins við sögu í einum leik með Val eftir áramót. Dagur Árni lýsti því í viðtali við Handkastið á dögunum að tímabilið hafi reynst honum gríðarlega erfitt persónulega. MJÖG ERFITT TÍMABIL FYRIR MIG PERSÓNULEGA Handkastið heyrði í Andra Snæ Stefánssyni þjálfara KA og spurði hann út í komu Dags Árna og stöðuna á liðinu en liðið varð fyrir miklum skakkaföllum undir lok tímabils en KA tapaði 3-0 í undanúrslitum gegn Val í úrslitakeppninni. ,,Það er auðvitað frábært að fá Dag Árna heim í KA enda uppalinn í félaginu og hann veit hvað við stöndum fyrir og öfugt. Dagur er frábær leikmaður sem á möguleika á að bæta sig enn frekar. Ég þekki hann vel og hlakka til að fá hann í okkar vopnabúr. Hann kemur meiddur til okkar og vonandi að hann nái sér sem allra fyrst og geti hjálpað liðinu að þroskast," sagði Andri Snær. ,,Í sambandi við meiðslalistann okkar þá er Daði fyrirliði á góðri leið í sinni endurhæfingu eftir hásinaslit. Það er klárt að hann byrjar ekki tímabilið en verður vonandi leikfær þegar á líður tímabilið enda er hann mjög mikilvægur fyrir okkur." ,,Giorgi er enn að glíma við hnémeiðslin sín og enn óljóst hvort hann verði leikfær í byrjun tímabils en hann er metnaðarfullur og vinnur í sinni endurhæfingu. Aðrir af meiðslalistanum í lok tímabils eru að verða góðir og ég reikna með þeim 100% klárum í fyrstu æfingaleikjunum á ágúst." Litlar breytingar hafa orðið á liði KA frá síðustu leiktíð. Einar Rafn Eiðsson flutti á höfuðborgarsvæðið og gekk í raðir FH og þá er Dagur Árni eini leikmaðurinn sem hefur gengið í raðir félagsins. ,,Við erum alltaf opnir fyrir því að styrkja KA liðið okkar, það er lifandi dæmi. Við erum jafnframt mjög ánægðir með okkar mannskap og treystum þeim strákum sem við erum með," sagði Andri Snær að lokum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.