Elías Ingi Gíslason í Víking

Handknattleiksdeild Víkings hefur samið við Elías Inga Gíslason, sem gengur til liðs við félagið frá HK.

Í tilkynningu frá Víkingum segir að Elías Ingi sé ungur og efnilegur örvhentur leikmaður sem kemur til með að styrkja leikmannahóp Víkings. Hann er marksækin skytta með góða tilfinningu fyrir leiknum og getur einnig leyst stöðu hægra horns þegar á þarf að halda. Sú fjölhæfni gerir hann að spennandi viðbót við hópinn.

„Við erum mjög ánægð með að fá Elías Inga til liðs við okkur. Hann er ungur, metnaðarfullur og efnilegur leikmaður sem býr yfir góðum eiginleikum. Hann getur bæði leyst stöðu skyttu og horns, sem gefur okkur aukna breidd og fleiri möguleika í sóknarleiknum,“ segir Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Víkings.

Víkingar hafa verið duglegir að styrkja hópinn fyrir komandi átök í Olís deildinni á næstu leiktíð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top