Svona mun nýja Þjóðarhöllin líta út

Samkeppnisútboði fyrir byggingu nýrrar Þjóðarhallar er nú lokið en það verða Íslenskir aðalverktakar og tengdir verktakar sem hnepptu hnossið. Tilboði þeirra upp á 16,8 milljarða króna var tekið.

Samkvæmt tilkynningu frá Þjóðarhöllinni ehf. mun ný Þjóðarhöll umbylta umgjörð í kringum landsliðsfólk í fjölmörgum íþróttagreinum, stórbæta aðstöðu fyrir börn og ungmenni og aðra íþróttaiðkendur auk þess að vera fjölnota hús fyrir þjóðina alla.

Samkvæmt reglum opinberra innkaupa verður nú lögbundinn biðtími áður en endanlegir samningar verða undirritaðir þar sem tilboðsgjöfum gefst tækifæri til þess að kynna sér niðurstöðuna og eftir atvikum gera athugasemdir eða kæra ákvörðunina. Framkvæmdir munu hefjast að samningsgerð lokinni.

Myndir af nýrri Þjóðahöll

Myndir: Þjóðarhöll ehf.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top