Nýlega bárust þær fregnir úr herbúðum Selfoss að varnarmaðurinn sterki, hinn 32 ára gamli, Sverrir Pálsson væri búinn að leggja skóna á hilluna. Mikil blóðtaka fyrir Selfoss enda Sverrir reyndur og sterkur varnarmaður og var lengi máttarstólpi í varnarleik liðsins í mörg ár. Á árum áður þegar Sverrir fór ennþá fram yfir miðju var hann líka klókur og ólseigur sóknarmaður með fínan leikskilning. Við ákváðum aðeins að heyra í Sverri og fá hann til að segja okkur frá ákvörðuninni og hann bætti síðan sjálfur við nokkrum orðum um ferilinn. "Já ég er búinn að leggja skóna á hilluna. Get sagt að ég er nokkuð sáttur við minn feril sem handboltamaður. Byrjaði tiltölulega seint í handbolta eða í 6. flokki. Var þar á undan í frjálsum sem er vissulega frábær grunnur fyrir flestar íþróttir. Verð Íslandsmeistarari í 3. Flokki með Janus Daða fremstan meðal jafningja og góða þjálfara í Sebastian Alexanderssyni og Stefáni Árnasyni. Ef við spólum nokkur ár fram í tímann var svo kominn tími til að koma Selfossi í bestu röð og hófst sú vegferð í kringum 2015. Með frábærri umgjörð og þjálfurum eins og Vésteini Hafsteinssyni og Rúnar Hjálmarssyni á bakvið tjöldin. Það var frábær efniviður í liðinu og þá sérstaklega 97-98 árgangnum. Þetta leiddi til þess að við fórum upp í lok sama tímabils eftir sigur í oddaleik umspils á móti frábæru liði Fjölnis á þeim tíma" "Eftir það var stígandi á milli ára og líklega mesta svekkelsi á mínum ferli að tapa fyrir FH í oddaleik árið 2018. Það var bætt upp fyrir það ári síðar með Íslandsmeistaratitli. Það tímabil var einnig eftiminnilegt vegna þess hve nálægt við vorum að komast í riðlakeppni Evrópudeildarinnar sem hefði verið skemmtileg reynsla. Tel þetta 2019 lið vera eitt besta félagslið í handbolta á Íslandi. Eftir það tímabil hefur ferillinn verið erfiðari. Slít krossband í æfingaleik stuttu áður en tímabilið byrjar 2019/2020 og svo aftur ári síðar á undirbúningstímabilinu. Félagi minn skrifaði grein þar sem hann hafði reiknað út að það voru 999 dagar á milli keppnisleikja hjá mér, eftir að ég snéri aftur, sem er tölfræði sem ég óska engum að hafa á ferilskránni. Hef svosem aldrei getað beitt mér að fullu eftir það en geng sáttur frá borði. Stoltur af því að hafa alltaf spilað með sama félagsliðinu og veit að liðsfélagar mínir muni enn eitt árið koma sérfræðingum og spámönnum á óvart með frammistöðum í vetur. Aldrei að vita nema maður sjáist eitthvað á vellinum með stórveldinu ÍF Mílan í framtíðinni ef skrokkurinn leyfir"

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.