Fyrir stuttu lá það ljóst fyrir að norðlenski línumaðurinn Ásdís Guðmundsdóttir myndi ekki halda áfram að spila með Fram en hún ákvað að nýta sér uppsagnarákvæði í sínum samning við félagið. Ásdís var þriðji markahæsti leikmaður liðsins í vetur með 100 mörk og þar af 18 á vítalínunni. Hún er uppalin hjá KA/Þór á Akureyri og varð m.a Íslandsmeistari með liðinu árið 2021. Einnig lék hún 1 tímabil með ÍBV áður en hún fór í nám erlendis. Við ákváðum að leita viðbragða hjá Ásdísi við þessum fregnum. "Tíminn hjá Fram var ótrúlega lærdómsríkur á marga vegu og ég tek margt jákvætt með mér úr þeirri reynslu. Toppaðstæður í Úlfarsárdal. Það sem stendur kannski helst upp úr eru stelpurnar í liðinu, þar er fullt af hæfileikaríkum og metnaðarfullum stelpum þarna sem eiga svo sannarlega framtíðina fyrir sér. Þetta er ungt og spennandi lið, rétt eins og deildin í heild sinni, sem er að þróast með hverju árinu. Það verður spennandi að sjá hvernig næsta tímabil verður með fjölgun liða" "Ég er þakklát fyrir tímann minn hjá félaginu og fyrir allt það góða fólk sem ég kynntist á leiðinni. Nú er ég fyrst og fremst spennt fyrir næsta kafla og hlakka til að takast á við nýjar áskoranir. Í fyrra var ég nýbúin í námi erlendis og hafði ekki verið að spila handbolta það ár. En síminn stoppar ekki núna eftir þetta tímabil, Gummi bikaróði er æstur að fá mig í ÍBV-B þannig við sjáum til hvernig þær viðræður fara."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.