Arnþór Sævarsson hefur skrifað undir samning við Handknattleiksdeild Gróttu og leikur með liðinu á næstu leiktíð. Arnþór er fæddur árið 2005 og kemur úr Fram þar sem hann hefur leikið allan sinn meistaraflokksferil. Hann hefur leikið 51 leik með Fram auk þess að hafa verið lykilleikmaður með Fram U í Grill 66-deildinni undanfarin ár. „Arnþór er kraftmikill sóknarleikmaður og öflugur varnarmaður. Það eru virkilega góðar fréttir að hann komi til liðs við Gróttu. Hann er sömuleiðis mikill karakter og því góð viðbót við okkar flotta leikmannahóp“, sagði Andri Sigfússon þjálfari Gróttu þegar samningar voru í höfn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.