Óvíst er hvort fyrirhugaðar breytingar á áhorfendastúkum í Kaplakrika verði að veruleika fyrir komandi keppnistímabil. FH hafði stefnt að því að endurnýja stúkurnar beggja vegna vallarins í sumar, en nú þykir ólíklegt að af þeim framkvæmdum verði á næstu mánuðum. Ástæðan er sú að félaginu hefur enn ekki tekist að finna stúkur sem henta starfseminni í Kaplakrika, þrátt fyrir mikla vinnu undanfarna mánuði. FH hefur stefnt að því að finna útfærslu sem tryggi allt að 1800 áhorfendur og verið er að skoða möguleika á að hafa svalir í salnum sem tryggja betra aðgengi á fjölliðamótum. Leitin að hentugri lausn hefur þó reynst erfið. Hafa þær stúkur sem helst hafa komið til greina reynst of fyrirferðarmiklar þegar þær eru dregnar saman. Það hefði áhrif á þá tvo æfingavelli sem eru í salnum og notaðir eru daglega fyrir æfingastarf félagsins. Á sama tíma eru aðrar framkvæmdir þegar hafnar í íþróttahúsinu. Í vikunni hófst vinna við að fjarlægja núverandi parket af keppnisvellinum og verður nýtt parket lagt í sumar. Tímapressan er einnig mikil þar sem FH hefur tryggt sér sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar á næsta tímabili og þarf að tryggja að aðstaðan uppfylli allar kröfur áður en keppnin hefst. Einar Andri Einarsson, starfsmaður handknattleiksdeildar FH, sagði í samtali við Handkastið að vinna við að finna hentugar stúkur væri í fullum gangi og vonuðust menn til þess að hægt sé að koma þeim upp á næstu mánuðum en ljóst væri að gömlu stúkurnar yrðu notaðar fyrstu mánuði tímabilsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.