Í morgun var dregið í riðla fyrir Meistaradeildina tímabilið 2026/2027. Verður keppnin með breyttu sniði en nýverið var liðum í keppninni fjölgað úr 16 í 24 og verður nú spilað í sex fjögurra liða riðlum. Liðin sem enda í fyrsta og öðru sæti munu fara áfram í milliriðakeppni en liðin sem enda í þriðja og fjórða sæti í hverjum riðli munu færast niður í Evrópudeildina. Riðlarnir líta svona út A riðill B riðill C riðill D riðill E riðill F riðill
One Veszprém HC (HUN)
Füchse Berlin (GER)
FC Porto (POR) Þorsteinn Leó Gunnarsson leikur með Porto.
RK Partizan (SRB)
HBC Nantes (FRA)
MT Melsungen (GER)
Orlen Wisla Plock (POL)
HC Vardar 1961 (MKD)
Álaborg (DEN)
Paris Saint-Germain (FRA)
HC Zagreb (CRO)
RK Celje Lasko (SLO)
Sporting Clube de Portugal (POR) Orri Freyr Þorkelsson leikur með Sporting.
OTP Bank – PICK Szeged (HUN)
GOG (DEN)
IFK Kristianstad (SWE) Einar Bragi Aðalsteinsson, Andri Erlingsson og Baldur Fritz Bjarnason leika með Kristianstad.
Barça (ESP) Viktor Gísli Hallgrímsson og Janus Daði Smárason leika með Barça.
Montpellier Handball (FRA)
CS Dinamo Bucuresti (ROU)
SAH Aarhus (DEN) Kristján Örn Kristjánsson leikur með Skanderborg.
SC Magdeburg (GER) Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon leika með Magdeburg.
Industria Kielce (POL)
Kolstad Handball (NOR)
HC Kriens-Luzern (SUI)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.