Íslenski landsliðsmarkvörðurinn og leikmaður Evrópumeistara Barcelona, Viktor Gísli Hallgrímsson heldur markmannsnámskeið hér á landi í júlí í samstarfi við Handboltaskóla Framtíðarinnar. Námskeiðið fer fram 13.–15. júlí í Heklu-höllinni í Garðabæ og er ætlað bæði strákum og stelpum fæddum á árunum 2007 til 2013. Um er að ræða þriggja daga námskeið þar sem þátttakendur fá einstakt tækifæri til að læra af einum fremsta markverði í heiminum. Viktor Gísli mun halda stutta fyrirlestra fyrir iðkendur auk þess að stýra markmannsæfingum í sal. Einnig verður lögð áhersla á sérhæfðar styrktaræfingar sem eru sérstaklega sniðnar að þörfum markmanna. Þetta er annað sumarið í röð sem Viktor Gísli stendur fyrir markmannsnámskeiði á Íslandi í samstarfi við Handboltaskóla Framtíðarinnar, en námskeiðið í fyrra naut mikilla vinsælda. Skráning á námskeiðið fer fram á Abler-síðu Handboltaskóla Framtíðarinnar og eru áhugasamir hvattir til að tryggja sér pláss sem fyrst.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.