Fjölnir hefur staðfest fréttir Handkastsins frá því um síðustu helgi að Guðmundur Rúnar Guðmundsson væri hættur sé þjálfari karlaliðs félagsins í Grill66-deildinni. ,,Stjórn handknattleiksdeildar Fjölnis vill færa Guðmundi Rúnari Guðmundssyni sínar innilegustu þakkir fyrir frábært starf sem hann hefur unnið sem aðalþjálfari meistaraflokks karla undanfarin tvö tímabil, en þar áður starfaði hann sem aðstoðarþjálfari liðsins," segir í tilkynningunni frá félaginu. Guðmundur Rúnar hættur með Fjölni Guðmundur Rúnar tók við liðinu fyrir síðasta tímabil af Gunnari Steini Jónssyni en Guðmundur hefur lengi starfað við þjálfun hjá Fjölni. ,,Guðmundur hefur sinnt starfi sínu af mikilli fagmennsku og heilindum við krefjandi aðstæður. Hann hefur lagt mikið af mörkum til leikmannahópsins, unnið afar vel með liðinu og skilað góðum árangri. Guðmundur er sannur Fjölnismaður sem hefur ávallt lagt félaginu lið af heilum hug. Fyrir það erum við afar þakklát og metum framlag hans mikils," segir ennfremur. Undir stjórn Guðmundar komst Fjölnir í 8-liða úrslit Powerade-bikarsins á síðustu leiktíð en liðið tapaði í undanúrslitum um laust sæti í Olís-deildinni eftir einvígi gegn Stjörnunni. Gunnar Valur Arason er talinn líklegur eftirmaður Guðmundar en Gunnar Valur hætti sem þjálfari kvennaliðs Fjölnis eftir síðasta tímabil en hann var aðstoðarmaður Guðmundar á síðustu leiktíð með karlaliðið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.