Handboltamiðillinn GoHandball hefur tekið saman lista yfir nokkrar af glæsilegustu og þekktustu handboltahöllum heims. Í umfjöllun miðilsins er sagt frá því að í ákveðnum höllum verði upplifunin enn magnaðri þar sem áhorfendur, saga hallanna og einstakt andrúmsloft geri hvern leik ógleymanlegan. Hér fyrir neðan eru hallirnar sem GoHandball valdi, í engri sérstakri röð. LANXESS Arena í Köln í Þýskalandi er ein þekktasta handboltahöll heims og tekur tæplega 20.000 áhorfendur. Frá árinu 2010 hefur hún verið fastur vettvangur úrslitahelgar Meistaradeildar Evrópu. GoHandball bendir á að höllin hafi hlotið viðurnefnið „Dómkirkja handboltans“, enda hafi þar farið fram mörg af stærstu augnablikum í sögu íþróttarinnar. Fullsetnar stúkur, stuðningsmenn alls staðar að úr Evrópu og einstök stemning gera úrslitahelgina í Köln að einum stærsta viðburði félagsliða handboltans. Jyske Bank Boxen í Herning er ein mikilvægasta handboltahöll Danmerkur og tekur um 15.000 áhorfendur. Þar hafa farið fram fjölmörg Evrópu- og heimsmeistaramót í handbolta. Samkvæmt GoHandball er höllin oft kölluð „virki heimsmeistaranna“, enda tengist hún sterklega velgengni danska landsliðsins á alþjóðavettvangi. Ástríðufullir stuðningsmenn og fjölmargir eftirminnilegir landsleikir hafa fest Boxen í sessi sem eina af helstu handboltahöllum heims. MVM Dome í Búdapest er ein stærsta fjölnotahöll Evrópu og rúmar yfir 20.000 áhorfendur. Hún er heimavöllur úrslitahelgar Meistaradeildar Evrópu í kvennaflokki. GoHandball segir að höllin hafi á skömmum tíma skapað sér orðspor sem einn glæsilegasti vettvangur kvennahandboltans. Metaðsókn og nútímaleg aðstaða hafi gert hana að einu stærsta sviði íþróttarinnar fyrir félagslið kvenna. Arena Zagreb var reist fyrir heimsmeistaramótið árið 2009 og er ein stærsta íþróttahöll Króatíu með um 15.000 sæti. Hún hefur síðan verið vettvangur fjölmargra stórmóta og alþjóðlegra handboltaleikja. GoHandball nefnir sérstaklega einstaka stemningu í höllinni. Hún er heimavöllur RK Zagreb og þykir einn erfiðasti útivöllur Evrópu þar sem stuðningsmenn skapa gríðarlega mikinn kraft á leikdögum. Wunderino Arena í Kiel, sem áður hét Ostseehalle og síðar Sparkassen-Arena, er heimavöllur THW Kiel. Yfir 10.000 áhorfendur fylla höllina nánast á hverjum heimaleik. Í umfjöllun GoHandball kemur fram að höllin sé þekkt fyrir uppselda leiki og eina magnaðustu stemningu sem finnst í handboltaheiminum. Þegar skipsflautan hljómar við kynningu leikmanna rísa stuðningsmenn úr sætum sínum og halda uppi gríðarlegum stuðningi allt þar til lokaflautið heyrist. Veszprém Arena er heimavöllur ungverska stórliðsins One Veszprém HC og er talin hjarta karlahandboltans í Ungverjalandi. Þrátt fyrir að rúma aðeins rúmlega 5.000 áhorfendur nýtur hún orðspors sem einn erfiðasti útivöllur Evrópu. GoHandball segir að styrkur hallarinnar felist ekki í stærð hennar heldur stuðningsmönnunum. Samheldni þeirra og tryggð við liðið skapi einstaka leikdagsupplifun og á Meistaradeildarkvöldum sé höllin talin sannkallað vígi þar sem ástríðan vegi þyngra en áhorfendafjöldinn. Heimild: GoHandball – „The Greatest Handball Arenas in the World“.LANXESS Arena, Köln – Dómkirkja handboltans
Jyske Bank Boxen, Herning – Virki heimsmeistaranna
MVM Dome, Búdapest – Heimili úrslitahelgar kvenna
Arena Zagreb – Þar sem króatísk ástríða lifnar við
Wunderino Arena, Kiel – Heimili Sebranna
Veszprém Arena – Rauði veggurinn

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.