Fimman er liður á Handkastinu sem hluti af upphitun fyrir keppnistímabilið 2026/2027 sem hefst í byrjun september. Í Fimmunni tekur Handkastið saman lista af hinu og þessu sem Handkastið telur áhugavert og í þessum lista tekur Handkastið saman lista af leikmönnum sem gætu verið að dansa sinn hinsta dans í Olís-deild karla á komandi tímabili. Hér að neðan má sjá Fimmuna af síðasta dansinum fyrir tímabilið:
Einar Rafn Eiðsson er fæddur árið 1989 og er sennilega sá leikmaður sem hefur spilað flesta leiki í Olís-deildinni af þeim sem verða í eldlínunni á komandi tímabili. Hefur leikið með KA undanfarin ár en gekk í raðir FH í sumar en þar lék hann áður á sinum tíma. Verður líklega í minna hlutverki innan vallar en í stærri hlutverki utan vallar að miðla sinni reynslu til yngri leikmanna FH.
Tandri er fæddur árið 1990 og tók við sem spilandi aðstoðarþjálfari Stjörnunnar fyrir tímabilið og verður Sverri Eyjólfsson til halds og trausts. Tandri var í fanta formi fyrir síðustu leiktíð og var ætlað stórt hlutverk í vel mönnuðu Stjörnuliði en varð fyrir því óláni að slíta hásin í Evrópuleik Stjörnunnar gegn Baia Mare í Rúmeníu rétt fyrir leiktíðina. Hann kom til baka eftir áramót en þetta gæti verið hans hinsti dans.
Þráinn er fæddur árið 1993 og er yngsti leikmaðurinn á þessum lista. Hann var samningslaus Haukum í sumar en gerði eins árs samning við félagið í sumar og þetta gæti verið hans síðasta tímabil með Haukum en hann hefur leikið með liðinu síðustu sex tímabil.
Oddur Gretarsson sem er fæddur árið 1990 er fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður en hann kom heim til Þórs sumarið 2024 og er á leið inn í sitt þriðja tímabil með Þór. Hann er að upplagi vinstri hornamaður en hefur verið að spila með leikstjórnandi með Þór. Meiðsli hafa aðeins verið að plaga hann en hann gerði nýjan samning við Þór í sumar. Ekki hefur verið gefið út, hversu langur sá samningur sé.
Hægri hornamaðurinn, Leó Snær er fæddur árið 1992 og hefur leikið með uppeldisfélagi sínu HK síðustu tvö tímabil en hann gerði nýjan eins árs samning við HK í sumar. Leó meiddist illa á hné á síðasta tímabili en er kominn aftur á fullt. Ef hann fer meiðslalaus í gegnum þetta tímabil þá er Leó sennilega líklegastur á þessum lista að taka slaginn áfram á næsta tímabili.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.