Fimman: Pressan verður á þessum
Egill Bjarni Friðjónsson

Fimman er liður á Handkastinu sem hluti af upphitun fyrir keppnistímabilið 2026/2027 sem hefst í byrjun september.

Í Fimmunni tekur Handkastið saman lista af hinu og þessu sem Handkastið telur áhugavert og í þessum lista tekur Handkastið saman lista af leikmönnum og þjálfurum sem verða undir pressu í vetur af ýmsum ástæðum.

Hér að neðan má sjá Fimmuna af þeim sem verða undir pressu á tímabilinu:

  1. Aron Pálmarsson (Þjálfari FH)
    Tók óvænt með sem aðalþjálfari FH af Sigursteini Arndal sem var með langtímasamning við FH. Sigursteinn Arndal var tilbúinn að stíga til hliðar og verða aðstoðarþjálfari FH á meðan Aron gerði kröfur um að taka við liðinu. FH hefur verið í baráttu um titla undir stjórn Sigursteins undanfarin ár og tapaði í úrslitaeinvíginu gegn Val á síðasta tímabili. Það verður mikil pressa á Aroni á hans fyrsta tímabili að ná góðum árangri með vel mönnuðu FH-liði.
  2. Hrannar Guðmundsson (Þjálfari Aftureldingar)
    Hrannar tók við uppeldisfélagi sínu í sumar eftir að hafa verið rekinn frá Stjörnunni eftir síðustu leiktíð en samningur hans við Stjörnuna var að renna út eftir tímabilið. Stjarnan tapaði öllum leikjum sínum í seinni umferðinni á síðustu leiktíð og endaði í 11.sæti deildarinnar. Stjórn Stjörnunnar ákvað að reka Hrannar eftir að deildarkeppninni lauk og fékk hann ekki að stýra liðinu í umspilinu um laust sæti í Olís-deildinni. Það kom því mörgum á óvart að Hrannar hafi fengið starfið í Mosfellsbænum en Stefáni Árnasyni var sagt upp störfum eftir aðeins eitt ár við stjórnvölinn í Mosfellsbænum en liðið endaði í 6.sæti deildarinnar og tapaði 2-1 í 8-liða úrslitum gegn Haukum. Það verður því pressa á Hrannari að ná árangri í Mosfellsbænum á sínu fyrsta ári með liðið.
  3. Ágúst Elí Björgvinsson (Markvörður KA)
    Kom til KA á miðju tímabili í fyrra eftir langa dvöl erlendis í Danmörku og Svíþjóð. Kom inn af miklum krafti og endaði með 35% markvörslu í þeim 12 leikjum sem hann spilaði og var hæstur allra þeirra markvarða sem spiluðu fleiri en þrjá leiki á tímabilinu. KA eru stórhuga fyrir komandi tímabil með Ágúst Elí og Dag Gautason með frá 1.umferð og týndi sonurinn, Dagur Árni Heimisson er kominn aftur eftir mislukkaða bæjarferð. Ágúst Elí þarf að standa undir þeim væntingum sem gerðar eru til hans og skáki hann Björgvin Pál af, fyrir áramót verður erfitt fyrir landsliðsþjálfarann að réttlæta það að velja Björgvin Pál á næsta stórmót.
  4. Daníel Þór Ingason (Leikmaður ÍBV)
    Kom heim fyrir síðasta tímabil og gekk í raðir ÍBV ásamt unnustu sinni Söndru Erlingsdóttur. Meðan Sandra Erlingsdóttir mætti með stæl í Olís-deild kvenna þá var heimkoma Daníels Þórs ekki jafn mikil flugaeldasýning. Danni skoraði ekki nema rúmlega þrjú mörk að meðaltali í leik og var með undir 50% skotnýtingu. ÍBV hefur nú misst þeirra tvo markahæstu leikmenn frá síðustu tímabili og það verður pressa á Danna að gera betur á komandi tímabili.
  5. Sverrir Eyjólfsson (Þjálfari Stjörnunnar)
    Kom inn í þjálfarateymi Stjörnunnar um áramótin sem aðstoðarþjálfari Hrannars Guðmundssonar. Liðinu gekk illa eftir áramót og vann ekki leik í deildinni eftir komu Sverris. Hann fékk hinsvegar traustið frá stjórninni, var fenginn til að stýra Stjörnunni í umspilinu eftir að Hrannar var rekinn og hefur nú verið ráðinn þjálfari liðsins. Það er mikið verk fyrir höndum hjá Sverri en liðið hefur misst marga lykilmenn frá síðustu leiktíð ofan í það að liðið er að koma eftir erfitt tímabil á síðustu leiktíð. Um er að ræða fyrsta meistaraflokksstarf Sverris í efstu deild og hann ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top