Stefán Freyr Jónsson til Fram

Stefán Freyr Jónsson hefur gengið til liðs við Fram frá Herði á Ísafirði. Stefán er ungur og efnilegur markamaður og hefur hann æft með Fram síðastliðnar vikur.

Stefán var með 184 varða bolta með Herði í Grill 66 deild karla síðasta vetur eða um 8,4 bolta að meðaltali í leik.

Breki Hrafn Árnason gekk á dögunum til liðs við Benfica í Portúgal og er Stefáni ætlað að fylla það skarð. Þá kynnti Fram einnig á dögunum að Jóhann Ágústsson hefði gengið til liðs við liðið frá Val en hann er einnig ungur markmaður.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top