U18 ára landsliðið slapp með skrekkinn gegn Frökkum
HSÍ

Íslenska U18 ára landsliðið mætti í dag því franska í krossspili um sæti 5-8 á Evrópumótinu í Rúmeníu.

Strákarnir töpuðu í gær gegn Þýskalandi í 8-liða úrslitum mótsins og mættu ákveðnir til leiks í dag. Íslenska liðið hafði frumkvæðið allan fyrri hálfleikinn og voru fjórum mörkum yfir í hálfleik 20-16.

Þegar leið á seinni hálfleikinn var hins vegar eins og íslensku strákarnir hefðu aðeins sleppt takinu og hleyptu franska liðinu inn í leikinn. Staðan leit alls ekki vel út fyrir strákana þegar 5 mínútur voru eftir og staðan 34-32 fyrir Frakkland.

Þá kom 5-0 kafli hjá íslenska liðinu og unnu þeir að lokum sigur 37-34 .

Freyr Aronsson var markahæstur með 11 mörk. Gunnar Róbertsson skoraði 9. Alex Unnar Hallgrímsson skoraði 4. Logi Finnsson skoraði 3. Brynjar Narfi Arndal, Anton Frans Sigurðsson, Bjarki Snorrason og Ómar Darri Sigurgeirsson skoruðu 2 mörk hver og Patrekur Smári Arnarsson og Sigurður Atli Ragnarsson skoruðu 1 mark hvor.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top