
Þriðja starfsár Handboltaskóla Framtíðarinnar hefst í september þegar átta vikna morgunnámskeið hefst þriðjudaginn 8.september. Námskeiðið er ætlað leikmönnum fæddum árið 2011 og 2012 og verða í 4.flokki á komandi tímabili. Um er að ræða sérhæfðar tækniæfingar fyrir allar leikstöður - í átta vikur. Æfingarnar fara fram á þriðjudagsmorgnum klukkan 6:20 - 7:30 í Heklu-höllinni í Garðabæ. Á síðustu árum hafa þjálfarar á borð við, Snorra Stein Guðjónsson, Óskar Bjarna Óskarsson og Aðalstein Eyjólfsson þjálfað á námskeiðinu. Gefið hefur verið út að fyrrum landsliðsmaðurinn, Hákon Daði Styrmisson verði meðal gesta þjálfara á námskeiðinu í ár. Skráning fer fram á Abler. https://www.abler.io/shop/hf11

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.