Færeyski hornamaðurinn Joan Rúnadóttir Johannesen gekk á dögunum til liðs við KA/Þór fyrir komandi tímabil. Joan er ein þeirra færeysku leikmanna sem hafa ákveðið að taka slaginn á Íslandi og segir tækifærið til að spila á hærra getustigi hafa ráðið miklu um ákvörðun sína. „Ég ákvað að flytja til Íslands vegna þess að mér fannst þetta vera frábært tækifæri. Það var mjög mikilvægt fyrir mig að fá að spila á hærra getustigi og það fæ ég tækifæri til að gera með KA/Þór.“ Áður en Joan tók ákvörðunina ræddi hún við fjölmarga sem þekkja vel til íslenska handboltans og Akureyrar og var heppin að geta leitað til vina sem spila í deildinni í dag og hafa spilað á Akureyri. Joan segist ekki hafa þekkt íslensku deildina sérstaklega vel en hefur þó fylgst með henni í gegnum vini sína sem leika hér á landi. Ísland er heldur ekki alveg framandi í augum Joan. Hún segir margt líkt með Íslandi og Færeyjum, bæði þegar kemur að samfélaginu og náttúrunni, auk þess sem hún hefur fylgst með íslensku landsliðunum í handbolta á stórmótum. „Ég veit að landslagið og samfélagið er að mörgu leyti mjög svipað og í Færeyjum þannig að manni finnst maður ekki vera svo langt að heiman. Ég hef líka fylgst með íslensku landsliðunum í handbolta þegar þau spila á stórmótum.“ Joan leikur í hægra horninu og þegar hún er beðin um að lýsa eigin leikstíl kemur eitt orð fyrst upp í hugann og það er hraði segir hún í léttum tón. Joan kom til Íslands 31. júlí og er því þegar komin til Akureyrar og farin að undirbúa sig fyrir tímabilið. Hún ber miklar væntingar til fyrsta tímabilsins með KA/Þór og segist hafa fengið góða tilfinningu fyrir bæði liðinu og þjálfurunum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.