Sonur Hreiðars Levy orðinn leikmaður FH
Þór

Hinn ungi og bráðefnilegi, Guðmundur Levy Hreiðarsson hefur samkvæmt heimildum Handkastsins gengið í raðir FH frá uppeldisfélagi sínu Þór.

Guðmundur Levy lék með FH í Hafnarfjarðarmótinu í gær í sigri FH gegn Aftureldingu og skoraði eitt mark í leiknum.

Hafnarfjarðarliðin fóru létt með HK og Aftureldingu

Guðmundur Levy er fæddur árið 2010 og hefur verið í yngri landsliðshópum Íslands undanfarin ár auk þess að hljóta einstaklingsverðlaun á lokahófum yngri flokka Þórs.

Faðir hans, er fasteignasalinn á Betri stofunni og fyrrum landsliðsmarkvörðurinn, Hreiðar Levy Guðmundsson.

Guðmundur er talinn vera einn efnilegasti leikmaður landsins í sínu árgangi og greinilegt að Aron Pálmarsson og FH-ingar eru farnir að fjárfesta til framtíðarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top