Daníel Freyr Andrésson, markvörður FH, varð fyrir því óláni á dögunum að slíta hásin á æfingu liðsins. Hann fer í aðgerð og verður frá keppni næstu mánuði, en útilokar ekki að ná lokaspretti tímabilsins með FH. Daníel var að byrja að hlaupa á æfingu þegar óhappið átti sér stað. Hann lýsir atvikinu sem dæmigerðum hásinarslitum. „Ég var svo sem ekkert í neinu actioni. Ég var bara að byrja að hlaupa og hélt að einhver hefði sparkað aftan í mig. Bara nákvæmlega eins og maður hefur heyrt að þetta sé,“ sagði Daníel í samtali við Handkastið. Hann fann ekki fyrir miklum sársauka í fyrstu en áttaði sig fljótt á því hvað hafði gerst. „Það var ekkert mikill sársauki en um leið og ég sá að það var enginn fyrir aftan mig vissi ég hvað hefði gerst.“ Daníel fór í aðgerð á föstudaginn og segir að í kjölfarið takið við átta vikna ferli í gipsi og skó. Ljóst er að meiðslin setja strik í reikninginn hjá FH-ingum en Daníel var einn af lykilmönnum liðsins á síðasta tímabili og átti meðal annars stórleik í úrslitaeinvíginu gegn Val í vor. Þrátt fyrir alvarleg meiðsli hefur Daníel ekki gefið upp vonina um að koma aftur inn á völlinn á þessu tímabili. „Varðandi framhaldið þá skýrist það vonandi eitthvað eftir aðgerðina en stefnan núna er að reyna að ná lokasprettinum á tímabilinu. Ég veit samt ekki hvort það sé raunhæft akkúrat núna.“ Daníel tekur jafnframt af allan vafa um framtíð sína sem handboltamaður en samningur hans við FH rennur út eftir tímabilið. „Þetta átti ekki að verða síðasta tímabil hjá mér og ég stefni ennþá að því að halda áfram að spila.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.