Stiven Tobar Valencia, vinstri hornamaður íslenska landsliðsins, er enn án félags eftir að samningur hans við Benfica rann út í sumar. Hann er jafnframt að jafna sig eftir axlaraðgerð en vonast til að geta snúið aftur á handboltavöllinn í október. Stiven segir viðræður við uppeldisfélagið Val hafa gengið brösulega og er afar ósáttur við framkomu félagsins í sumar. Stiven gekkst undir aðgerð á öxlinni fyrr í sumar eftir að hafa lokið tímabilinu með Benfica í Portúgal. Endurhæfingin gengur vel og hann er þegar farinn að lyfta og framkvæma flestar hreyfingar með handleggnum að hans sögn. „Endurhæfingin gengur mjög vel og í raun betur en ég bjóst við. Ég er byrjaður að geta gert flestar hreyfingar og núna bíð ég bara eftir því að geta kastað bolta eðlilega. Ég er byrjaður að lyfta og farinn að geta gert ýmislegt með hendinni. Ég er að gera ráð fyrir því að geta byrjað að kasta bolta á næstu vikum og ætti að verða klár í handbolta í október,“ segir Stiven í samtali við Handkastið. Hann er hins vegar enn án félags og segir stöðuna óþægilega. „Það er erfitt núna að vera óleikfær og vera samningslaus.“ Stiven segir að Valur hafi verið eini raunverulegi kosturinn í hans huga þegar hann yfirgaf Benfica. Hann er uppalinn hjá Val og vildi snúa aftur heim eftir árin erlendis. „Það sem hefur verið upp á borði hjá mér er uppeldisfélagið mitt, Valur. Það hefur gengið brösulega og ég veit ekki hvort það sé vegna fjárhagsvandræðanna hjá Val.“ Stiven segist hafa verið mjög áhugasamur um að ganga aftur í raðir félagsins og hafi látið Val vita af því strax. „Ég er mjög ósáttur með það hvernig Valur hefur tekið á móti mér síðustu vikur. Það kom ekkert annað til greina hjá mér til að byrja með en að koma heim í Val og spila fyrir mitt uppeldisfélag. Ég lét þá vita strax að ég væri tilbúinn að koma heim og spila fyrir Val.“ Hann segir að áhuginn frá Val hafi í fyrstu verið töluverður og hann hafi því talið líklegt að samningar myndu nást. „Til að byrja með fann ég fyrir töluverðum áhuga frá þeim og ég sá fyrir mér að við myndum geta náð saman og ég yrði leikmaður Vals á komandi tímabili.“ Síðan hafi hins vegar lítið gerst. „Síðan dróst þetta á langinn og það kom ekkert frá þeim og einu útskýringarnar voru þær að það væri ýmislegt í gangi sem dróst á langinn.“ Stiven segist hafa sýnt því skilning enda hafi hann sjálfur ekki verið leikfær eftir aðgerðina og þá hafi hann ekki endilega vitað hvað Valur ætti við, hvort um væri að ræða fjárhagsvandræði eða eitthvað á bakvið tjöldin sem kæmi honum ekkert við. „Ég bar virðingu fyrir því, enda var ég á þeim stað nýkominn úr aðgerð og ekki leikfær fyrr en í október. Það var því ekkert stress frá mínum bæjardyrum, enda gerði ég ráð fyrir því að við myndum ná saman á endanum.“ Þrátt fyrir skilning sinn á stöðu mála segist Stiven vera mjög ósáttur við hvernig samskiptin þróuðust þegar leið á sumarið. „En ég er ótrúlega ósáttur með það hvernig þessi mál þróuðust í sumar og hvernig þeir hafa tekið á móti uppöldum leikmanni sem hefur stórt Valshjarta og vildi ekkert annað en að spila fyrir Val.“ Hann segir að samskiptin hafi orðið til þess að hann upplifi sig hálf yfirgefinn í óvissunni. „Þeir hafa í raun skilið mann svolítið eftir einan eftir í myrkrinu.“ Stiven segir að hann hafi sjálfur reynt að koma til móts við Val en upplifi ekki mikinn áhuga af hálfu félagsins. „Ég hef reynt að komast til móts við þá en það er eins og það sé enginn áhugi frá þeim að fá mig og eina í stöðunni væri að fara í einhverja sjálfboðavinnu hjá félaginu.“ Stiven er því enn án félags en stefnir ótrauður á endurkomu í október. Á meðan heldur hann áfram endurhæfingu eftir aðgerðina og leitar að næsta áfangastað á ferlinum. Handkastið hefur greint frá því að samkvæmt heimildum okkar hefur Stiven fundið sér félag fyrir tímabilið 2026/2027 en hann hefur samkvæmt heimildum Handkastsins samið við þýska úrvalsdeildarfélagið, HC Erlangen. Stiven segir þó að málin séu ekki alveg svo einföld. ,,Ég hef átt í viðræðum við Erlangen en vegna meiðslanna bökkuðu þeir aðeins úr þeim viðræðum. Þeir vilja sjá mig spila og vilja sjá hvernig ég kem úr þessum meiðslum. Hugmyndin var, að ég myndi semja við þá fyrir tímabilið 2027/2028. En ég hef ekki skrifað undir neitt en það er mikill áhugi hjá þeim en þeir vilja sjá mig spila fyrst áður en við höldum áfram viðræðum." Það verður fróðlegt að sjá hvar landsliðsmaðurinn, Stiven Tobar Valencia leikur á næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.