Mathias Gidsel viðurkennir að Füchse Berlin sé ekki enn komið á sama stað og SC Magdeburg eftir 31–38 tap liðsins í þýska Ofurbikarnum í gær. Berlínarliðið, sem vann þýska bikarinn á síðustu leiktíð, missti þar með af tækifærinu til að vinna Super Cup þriðja árið í röð. Magdeburg hafði fimm marka forystu í hálfleik, 20–15 og vann að lokum sannfærandi sjö marka sigur. Mathias Gidsel var hreinskilinn eftir leikinn og viðurkenndi að bilið á milli liðanna væri enn töluvert. „Við höfum tekið góð skref í undirbúningnum en við erum ekki komin nógu langt í okkar ferli til að geta unnið Magdeburg. Það er sannleikurinn eins og staðan er í dag,“ sagði Gidsel. Miklar breytingar hafa orðið á liði Füchse í sumar. Lasse Andersson og Dejan Milosavljev yfirgáfu félagið og Nils Lichtlein og Fabian Wiede voru ekki með vegna meiðsla gegn Magdeburg. Gidsel segir þó ekki rétt að hengja tapið eingöngu á fjarveru lykilmanna. „Auðvitað er hægt að benda á að Lasse Andersson og Dejan Milosavljev séu ekki lengur hér og það skiptir miklu máli. En ég hef alltaf þá skoðun að við séum með gríðarleg gæði í hópnum. Hins vegar voru þau ekki nægileg til að vinna Magdeburg í dag.“ Berlínarliðið er því enn að finna rétta taktinn eftir breytingarnar í sumar. „Við erum í ferli með unga leikmenn og erum með algjörlega nýja sókn. Það tekur tíma,“ sagði Gidsel.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.