Langaði í spiltíma til að bæta mig
Aalborg

Bjarki Jóhannsson skipti nýlega yfir í Stjörnuna á láni frá FH.

Bjarki gekk til liðs við FH síðasta sumar frá Álaborg í Danmörku en hann er fæddur og uppalinn á Akureyri og var í yngri flokkum KA áður en hann flutti til Danmerkur ásamt fjölskyldu sinni. Bjarki náði ekki að brjóta sér almennilega leið inn í aðalliðið hjá FH en spilaði mikið með ÍH í Grill 66 deildinni og skoraði 133 mörk í 18 leikjum.

Við heyrðum í Bjarka og fengum hans viðbrögð yfir tímann hingað til hjá FH og nýrri áskorun sem bíður hans í Garðabænum.

"Það er búið að vera geggjað í FH, aðstaðan, þjálfararnir og hópurinn er allt geggjað en mér langaði í spiltíma til þess að bæta mig sem handboltamaður. Jú ég spilaði helling með ÍH seinasta tímabil en langar að sjá hvernig ég er í Olís deildinni. Möguleikinnn kom þegar Stjarnan vildi fá mig á lán og FH sagði mér frá því. Mér fannst ég vera taka rétta ákvorðun að samþykkja það svo ég get vonandi fengið meiri spiltíma á því leveli sem ég er að leitast eftir"

"Mér lýst mjög vel á tímabilið með Stjörnunni. Stjarnan búinn að taka vel á móti mér og get ekki beðið eftir að fá að byrja þetta spennandi tímabil með þeim. Þjálfarinn með klára sýn á því sem hann vill og ég ásamt öðrum leikmönnum Stjörnunar munum leggja allt í sölurnar" sagði Bjarki Jóhannsson í samtali við Handkastið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top