Viggó vill fá samningsdrög frá Trump
JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP

Landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson vakti athygli á samfélagsmiðlinum X í morgun þegar hann beindi óvenjulegri spurningu til Donalds Trump, Bandaríkjaforseta.

Viggó merkti Trump í færslu sinni á ensku:

„Kæri Donald Trump. Þar sem Ísland íhugar að ganga í Evrópusambandið viljum við einnig íhuga að verða 51. ríki Bandaríkjanna. Getum við fengið að sjá drög að samningnum? Áfram Ísland!“

Færslan vísar til umræðunnar um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Íslendingar ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu laugardaginn 29. ágúst þar sem kosið verður um hvort hefja eigi að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Kosið verður því ekki um sjálfa aðildina að þessu sinni heldur hvort viðræður eigi að hefjast á ný.

Nú er því spurning hvort Trump sjái ástæðu til að svara íslenska landsliðsmanninum – og jafnvel senda honum umbeðin samningsdrög.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top