Vinstri skyttan, Ólafur Guðmundsson fyrrum leikmaður íslenska landsliðsins gæti verið á leiðinni aftur á handboltavöllinn, aðeins nokkrum mánuðum eftir að hann lagði skóna á hilluna. Hinn 36 ára gamli leikmaður hefur síðustu tvær vikur æft með gamla félaginu sínu, IFK Kristianstad, en Ólafur varð sænskur meistari með liðinu þrjú ár í röð, 2016, 2017 og 2018. Ólafur hefur búið í Kristianstad ásamt fjölskyldu sinni undanfarin ár en hann hefur verið samningsbundinn Karlskrona þangað til í sumar. ER FERLI ÓLAFS GUÐMUNDSSONAR LOKIÐ? Ólafur tilkynnti í mars síðastliðnum að ferlinum væri lokið eftir að hafa glímt við bakmeiðsli. Hann lék ekki eina einustu mínútu með HF Karlskrona á síðustu leiktíð. Nú hefur hins vegar kviknað aftur áhugi á því að reima á sig skóna. SKÓRNIR FARNIR Á HILLUNA – GENGUR SÁTTUR FRÁ BORÐI „Það er gaman að fá að vera með og finna aðeins fyrir boltanum aftur,“ sagði Ólafur en það er Kristanstadsblaðið sem greinir frá. Ólafur útilokar ekki að koma Kristianstad til aðstoðar en segir þó að ekkert sé ákveðið. „Ef mér líður vel í líkamanum og félagið telur sig hafa þörf fyrir það sem ég get lagt til, þá er ég opinn fyrir því að vera með. Ég væri ekki hér annars. Það væri skemmtilegt og mér hefur alltaf þótt vænt um IFK. Ef ég get hjálpað þeim með einhverju þá vil ég gera það.“ Hann leggur þó áherslu á að enn séu ýmis atriði óljós. „Það eru nokkur spurningarmerki. Við höfum til dæmis ekkert rætt um samning yfirhöfuð.“ Ólafur segir líkamann hafa brugðist vel við æfingunum. Bakmeiðslin sem hrjáðu hann á síðustu leiktíð virðast nú vera úr sögunni. „Mér líður í raun nokkuð vel. Ég hef getað æft vel undanfarið og tekið mikið af styrktaræfingum á eigin spýtur. Á síðasta ári var ég með verki í bakinu allan tímann og það hjálpaði ekki að sitja í bíl í tvo og hálfan tíma hvora leið á hverja æfingu. Nú finn ég ekkert fyrir bakinu, það er horfið.“ Ólafur viðurkennir að endurkoma hans til æfinga hjá Kristianstad hafi ekki verið á dagskránni. „Nei, þetta var ekki á kortinu hjá mér heldur.“ Hugmyndin kviknaði einfaldlega vegna aðstæðna hjá félaginu. „Það er ekkert leyndarmál að IFK vantar smá reynslu þar sem þeir eru með marga nýja og unga leikmenn í liðinu. Ég bý hér í Kristianstad og við ræddum um að ég myndi prófa og sjá til." Tveir 19 ára Íslendingar, Andri Erlingsson og Baldur Fritz Bjarnason, eru í leikmannahópi Kristianstad og Ólafur hefur góða trú á þeim. Báðir gengu þeir í raðir félagsins í sumar en fyrir er Einar Bragi Aðalsteinsson. Gunnar Steinn Jónsson tók síðan við sem aðstoðarþjálfari liðsins í sumar. „Þeir eru báðir mjög miklir hæfileikar og búa yfir mjög háu getustigi. Þeir skilja handboltann og hafa góða leikskilning.“ Áskorunin sé hins vegar mikil fyrir ungu leikmennina. „Það sem er svolítið erfitt er að þeir þurfa að skila árangri nokkuð fljótt því það er enginn fyrir framan þá sem þeir geta hallað sér að.“ Og þar kemur auðvitað upp nafn Axel Månsson, sem yfirgaf Kristianstad eftir síðasta tímabil. „Já, og mikið af leik Kristianstad var byggt upp í kringum Axel Månsson. Þar þarf að finna eitthvað nýtt, án Axels.“ Ólafur telur að fleiri leikmenn þurfi að stíga upp. „Isaac Biel Nilsen, Anton Hallbäck og Einar Bragi Aðalsteinsson þurfa að taka meiri ábyrgð á þessu tímabili, en ég held að þeir geti ráðið við það. Það verður spennandi að fylgjast með.“ Kristianstad hefur leik í sænska bikarnum á föstudagskvöld þegar liðið mætir IFK Ystad. Ólafur segir þó ólíklegt að hann verði með í þeim leikjum. „Við höfum ekkert rætt um það, en ég er ekki með samning þannig að það virðist ólíklegt.“Ungir Íslendingar fá mikla ábyrgð

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.