
Hannes Höskuldsson, vinstri hornamaður Selfoss vonast til að geta snúið aftur á handboltavöllinn í október eftir aðgerð sem hann gekkst undir um miðjan júní. „Staðan er nokkuð góð bara. Ég er á flottum stað í endurhæfingunni og bara gengið vel hingað til. Ég er í góðum höndum hjá Jónda og Katli,“ sagði Hannes. „Ég vonast til þess að geta mætt á völlinn einhvern tímann í október, en það verður bara að koma í ljós hvort það náist.“ Hannes er einn af öflugustu vinstri hornamönnum Olís-deildarinnar og var langmarkahæsti leikmaður Selfoss á síðustu leiktíð er liðið endaði í 10.sæti deildarinnar sem nýliði. Hann skoraði 154 mörk, en næstur í markaskorun liðsins kom Tryggvi Sigurberg Traustason með 83 mörk. Endurkoma Hannesar yrði því mikilvæg fyrir Selfoss liðið. Selfoss fær Íslandsmeistara Vals í heimsókn í 1.umferð Olís-deildarinnar á fimmtudaginn. Liðið fer svo til Eyja og mætir ÍBV í 2.umferðinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.