Átta marka sigur Kiel í fyrsta leik tímabilsins
Jens Kr Vang

Tveir leikir fóru fram í dag er þýska úrvalsdeildin hófst. Kiel og Lemgo áttust við í fyrsta leik tímabilsins en leikurinn fór fram í Wunderino Arena, Í seinni leik dagsins fóru Reynir Þór og félagar til höfuðborgarinnar og mættu Füchse Berlin.

Fyrri leikur dagsins fór fram í Wunderino Arena er Kiel tók á móti Lemgo Lippe. Leikurinn var nokkuð jafn framan af og liðin skiptust á að skora. Um miðjan fyrri hálfleik var staðan 10–10, en Kiel náði smám saman yfirhöndinni er fór að líða á lok fyrri hálfleiks og fór með 17–15 forystu inn til búningsklefa. Í upphafi seinni hálfleiks hélt leikurinn áfram að vera jafn og staðan var 20–18 eftir tæpar 39 mínútur. Eftir það fór Kiel að taka völdin. Munurinn jókst jafnt og þétt, fyrst í 24–18 og síðan 28–21. Lemgo náðu engum áhlaupum til að ógna að forskoti Kiel og héldu heimamenn því áfram að stjórna leiknum. Lokatölur 35–27 Kiel í vil. Atkvæðamesti leikmaður leiksins var Joel Willecke úr liði Lemgo með 8 mörk.

Seinni leikur dagsins fór fram í höfuðborginni þar sem Füchse Berlin tók á móti Reyni Þór og félögum úr Melsungen. Leikurinn byrjaði nokkuð jafn og var staðan 5–3 eftir rúmar átta mínútur. Eftir það fór Füchse Berlin að ná betri tökum á leiknum og jók forskotið jafnt og þétt. Um miðjan fyrri hálfleik var staðan 9–4 og undir lok hans jókst munurinn enn meira. Berlin fór því með mjög þægilega 17–9 forystu í hálfleik.Í byrjun seinni hálfleiks hélt Berlin áfram að keyra á Melsungen og komst mest níu mörkum yfir, 20–11. Melsungen gáfust þó ekki upp og fóru smám saman að vinna sig aftur inn í leikinn. Þegar um tíu mínútur voru eftir var staðan 31–24, en þá hófst sterk endurkoma gestanna.Á lokamínútunum minnkuðu Melsungen muninn hratt. Berlin komst í 33–27, en Melsungen skoruðu fjögur síðustu mörk leiksins og minnkuðu muninn niður í aðeins tvö mörk. Endurkoman kom þó of seint og Berlin hélt út og vann 33–31. Atkvæðamesti leikmaður leiksins var Matthes Langhoff með 9 mörk og 2 stoðsendingar. Reynir Þór skoraði 4 mörk og gaf 2 stoðsendingar.

Úrslit dagsins:

THW Kiel- Lemgo Lippe 35-27

Füchse Berlin-Melsungen 33-31

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top