Fimman er liður á Handkastinu sem hluti af upphitun fyrir keppnistímabilið 2026/2027 sem hefst í byrjun september. Í Fimmunni tekur Handkastið saman lista af hinu og þessu sem Handkastið telur áhugavert og í þessum lista tekur Handkastið saman lista af leikmönnum sem lögðu skóna á hilluna í sumar og verður mikill söknuður af í Olís-deild karla á komandi tímabili. Hér að neðan má sjá Fimmuna af söknuðu fyrir tímabilið: Ágúst Birgisson (FH) Magnús Óli Magnússon (Valur)
Ágúst Birgisson tók óvænt fram skóna fyrir síðustu leiktíð eftir að hafa gefið það út, ekki í fyrsta skipti að hann væri hættur. Hefur verið hjartað í varnarleik FH-inga undanfarin ár. Nú hefur hann hinsvegar hvatt sviðið og það verður hlutverk yngri leikmanna að taka við af Ágústi. Handkastið mun þó ekki missa hökuna í gólfið ef Ágúst myndi snúa á parketið, lendi FH-ingar í meiðsla vandræðum í vetur.
Valsmenn vonuðust eftir því strax í kjölfarið að því að Magnús Óli tilkynnti í viðtali strax eftir Íslandsmeistaratitilinn í vor að hann myndi snúast hugur í ágúst og taka tímabilið sem framundan er, sér í lagi vegna þátttöku Vals í Evrópudeildinni. Valsmönnum varð hinsvegar ekki að ósk sinni og hafa ekki fyllt skarð Magnúsar Óla sem hefur verið stórkostlegur með Val undanfarin ár.
Róbert Aron Hostert (Valur)
Ótrúlegur leikmaður, ótrúlegur karakter og ótrúlegur sigurvegari sem hefur orðið Íslandsmeistari með þremur mismunandi félögum á Íslandi, oftar en einu sinni. Fyrir utan alla aðra titla sem hann hefur unnið á ferlinum. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá honum undanfarin ár og var hann einungis í varnarhlutverki hjá Val á síðustu leiktíð. Verður mikill söknuður af Róberti Aroni, bæði innan og utan vallar.
Kári Kristján Kristjánsson (Þór)
Kári Kristján er einn litríkasti leikmaður Olís-deildarinnar undanfarin ár. Mikið fjölmiðlafár var í kringum leikmanninn síðasta sumar þegar hann fékk ekki endurnýjaðan samning hjá uppeldisfélagi sínu ÍBV. Í upphafi síðasta tímabils gekk hann síðan í raðir nýliða Þórs á Akureyri. Hann var þó í minna hlutverki þar en búist var við. Það verður samt sem áður mikill söknuður af Kára Kristjáni, bæði í Þorpinu og fyrir almennan áhugamann um íslenskan handbolta.
Rúnar Kárason (Fram)
Lang reyndasti leikmaður í herbúðum Fram síðustu ár og fer ábyrgðin nú á yngri og óreyndari leikmenn í liði Fram. Rúnar kom inn í íslensku deildina með miklum látum og varð bæði Íslandsmeistari með ÍBV og síðan með Fram. Hann átti ennþá eitt ár eftir af samningi sínum við Fram en ákvað eftir síðustu leiktíð að segja þetta gott. Hann sló á þær sögusagnir í byrjun ágúst að hann væri mögulega að snúa til baka á parketið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.