Beint streymi: Kynningarfundur fyrir Olís- og Grill 66 deildirnar
Baldur Þorgilsson

Handboltavertíðin fer formlega af stað í dag þegar blaðamanna- og kynningarfundur Olís- og Grill 66-deildanna fer fram. Formenn, fyrirliðar og þjálfarar allra liða í deildunum hafa verið boðaðir á fundinn, sem markar upphaf keppnistímabilsins 2026–27.

Fundurinn er um leið blaðamannafundur fyrir meistaratvennuna og þar verða þjálfarar og fyrirliðar liðanna teknir tali um komandi átök en Meistarakeppni HSÍ fer fram í kvöld með tvíhöfða í Valsheimilinu þegar Valur og Haukar mætast í karla og kvennaflokki.

Stelpurnar hefja leik klukkan 18:00 og strákarnir klukkan 20:15.

Á blaðamannafundinum í dag sem hefst klukkan 12:15 hefur HSÍ kynnt að þrjár risaundirskriftir fara fram á fundinum sjálfum.

Spá tímabilsins í Olísdeildum og Grill 66-deildum verður opinberuð á fundinum, bæði í kvenna- og karlaflokki. Þar kemur í ljós hvaða liðum er spáð titlinum, hverjum er spáð fallsæti og hvaða lið koma mest á óvart í spánni.

Þá verða sjónvarpsmál vetrarins kynnt, en útsendingar frá deildunum hafa verið eitt helsta hitamál handboltaáhugafólks undanfarin misseri. Á fundinum verður farið yfir fyrirkomulag útsendinga á komandi tímabili.

Fundurinn hefst klukkan 12:15 á Hlíðarenda og verður sýndur í beinni útsendingu. Livey streymir fundinum og hægt er að fylgjast með á YouTube-rás HSÍ eða á eftirfarandi hlekk:

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top