Leikstjórnandinn, Bjarki Jóhannsson hefur fengið félagaskipti yfir í Stjörnuna og kemur til félagsins á láni frá FH. Handkastið hafði áður greint frá því að Aron Pálmarsson þjálfari FH hafi staðfest að Bjarki væri á leið í Stjörnuna á láni. Bjarki gekk í raðir FH síðasta sumar frá Álaborg í Danmörku en var í litlu hlutverki hjá fimleikafélaginu á síðustu leiktíð og var í töluvert stærra hlutverki með venslaliði FH, ÍH í Grill66-deildinni. Bjarki lék á sínum yngri árum með yngri landsliðum Íslands en hann skoraði níu mörk í 21 leik með FH á síðustu leiktíð en með ÍH skoraði hann 133 mörk í 18 leikjum og var markahæsti leikmaður ÍH í Grill66-deildinni í fyrra. Hans Jörgen Ólafsson og Sveinn Andri Sveinsson hafa yfirgefið Stjörnuna frá síðustu leiktíð og gera má ráð fyrir því að Bjarki eigi að fylla skarð þeirra í liði Stjörnunnar sem leikur undir stjórn Sverris Eyjólfssonar á komandi tímabili. Stjarnan heimsækir FH í 1.umferð Olís-deildar karla næstkomandi föstudag og verður fróðlegt að sjá hvort Bjarki megi leika gegn FH í þeim leik.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.