ÍBV spáð sigri í Olís deild kvenna
KERSTIN JOENSSON / AFP)

Á kynningarfundi Olís og Grill deildanna í hádeginu var kynnt spá leikmanna og þjálfara fyrir komandi tímabil.

ÍBV hefur styrkt sig mikið fyrir komandi leiktíð og meðal annars sótt landsliðskonuna Andreu Jacobsen sem á að fá lyklana að sóknarleiknum ásamt Söndru Erlingsdóttur og Birnu Berg Haraldsdóttur. HK sem eru nýliðar í deildinni er svo spáð falli.

Vegna þess að Vikingur dró lið sitt úr keppni í Olís deildinni og Selfoss tók sæti þess eftir að lið og þjálfarar höfðu sent inn spá sína eru einungis 9 lið í spánni.

Spá liðanna og þjálfaranna lítur svona út:

  1. ÍBV með 231 stig
  2. Haukar með 220 stig
  3. Valur með 201 stig
  4. Fram með 173 stig
  5. ÍR með 131 stig
  6. KA/Þór með 109 stig
  7. Grótta með 95 stig
  8. Stjarnan með 85 stig
  9. HK með 78 stig

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top