Sigvaldi frá vegna bakmeiðsla
Hannover Burgdorf

Sigvaldi Björn Guðjónsson var ekki í leikmannahópi Hannover-Burgdorf þegar liðið tók á móti Rhein-Neckar Löwen í fyrsta leik sínum í þýsku Bundesligunni í gær.

Ástæðan er bakmeiðsli sem íslenski landsliðsmaðurinn glímir enn við frá tíma sínum hjá norska félaginu Kolstad. Sigvaldi gekk í raðir Hannover-Burgdorf í sumar eftir fjögur tímabil hjá Kolstad, en meiðslin hafa sett strik í reikninginn á undirbúningstímabilinu.

Samkvæmt þýska miðilinn Bild, hefur Sigvaldi nánast aðeins getað fylgst með undirbúningi Hannover-Burgdorf frá hliðarlínunni vegna meiðslanna.

Fjarvera hans er því áfall fyrir Hannover-Burgdorf, en Sigvaldi var fenginn til félagsins til að fylla skarð Marius Steinhauser á hægri vængnum. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið eftir komu sína frá Kolstad.

Sigvaldi þarf því enn að bíða eftir fyrsta deildarleik sínum fyrir Hannover-Burgdorf. Fjarvera hans í leiknum í gær kom þó ekki að sök en Hannover-Burgdorf vann eins marka sigur á Hauki Þrastarsyni og félögum í Rhein Neckar Löwen, 32-31.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top