Þetta gæti orðið svolítið erfitt fyrir Mosfellinga
Egill Bjarni Friðjónsson

Í nýjasta þætti Handkastsins var hitað upp fyrir 1. umferð Olís-deildar karla og kvenna og farið yfir leikina sem fram undan eru. Þar var meðal annars rætt um áhugaverðan leik Aftureldingar og nýliða Víkings sem mætast í Mosfellsbænum á föstudagskvöld.

„Einn áhugaverðasti leikur umferðarinnar fer fram í Mosfellsbænum á föstudaginn, þegar Afturelding fær nýliða Víkings í heimsókn. Á Víkingur mögulega að stríða Aftureldingu í þessum leik?“ spurði Stymmi klippari, þáttastjórnandi Handkastsins.

Sigurjón Friðbjörn Björnsson telur að Víkingar þurfi að byrja tímabilið af krafti ætli liðið sér að halda sæti sínu í deildinni.

„Ef Víkingur ætlar að halda sér uppi í deildinni þá verða þeir að gera það snemma og safna stigum í upphafi tímabils. Tækifærið er í upphafi móts, það er ekki flókið,“ sagði Sigurjón.

Stymmi benti jafnframt á að Afturelding hafi ekki átt gott gengi gegn nýliðum á síðustu leiktíð.

„Afturelding gekk bölvanlega í fyrra gegn nýliðunum,“ sagði Stymmi.

Björn Ingi Jónsson gekk hins vegar skrefinu lengra og spáði Víkingi hreinlega sigri í leiknum.

„Ég ætla að skjóta á Víking sigur. Aðalsteinn Eyjólfsson er virkilega klókur og búinn að drilla þetta vel og þeir litu vel út á undirbúningstímabilinu. Á sama tíma er Hrannar í raun að sanna sig hjá Aftureldingu, nýr að mæta nýju liði. Ég held að þetta gæti orðið svolítið erfitt fyrir Mosfellinga,“ sagði Björn Ingi.

Það er því ljóst að Afturelding fær ekki auðveldan leik gegn nýliðunum ef marka má spár sérfræðinga Handkastsins.

1. umferð Olís-deildar karla hefst á fimmtudag með tveimur leikjum og heldur síðan áfram á föstudag, laugardag og sunnudag. Leikur Aftureldingar og Víkings fer fram í Mosfellsbænum á föstudag klukkan 19:30.

    Olís-deild kvenna hefst síðan á laugardag.

    Nýjustu fréttir

    HAFA SAMBAND

    Handkastið.net

    Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

    Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


    handkastid@handkastid.net

    Scroll to Top