Skandall ef Þór fer ekki í úrslitakeppnina
Egill Bjarni Friðjónsson

Það verður sannkallaður tvíhöfði í Lambhagahöllinni á laugardaginn þegar Fram tekur á móti Þór í 1. umferð Olís-deildar karla klukkan 16:00. Síðar sama dag, klukkan 18:15, mætast Fram og Grótta í Olís-deild kvenna.

Leikur Fram og Þórs var sérstaklega til umræðu í nýjasta þætti Handkastsins þar sem miklar væntingar voru gerðar til nýliða Þórs fyrir komandi tímabil.

„Þetta er leikurinn sem ég er spenntastur fyrir, Fram - Þór. Ég er spenntastur fyrir Þórsurum af öllum liðum deildarinnar. Þó að ég sé ekki mikill kennitölumaður þá er ég ótrúlega spenntur fyrir því að sjá þessa fjóra dönsku leikmenn sem Þór hefur fengið í sumar,“ sagði Stymmi klippari.

Sigurjón Friðbjörn tók undir orð Stemma og býst við erfiðum leik fyrir Fram en telur heimamenn þó líklegri til sigurs.

„Þetta verður ekki þægilegt fyrir Fram en líkurnar eru þó á því að Fram vinni þennan leik. Það verður ekkert sjokkerandi ef Þór vinnur hins vegar leikinn. Þeir eru með betra lið en í fyrra og Daniel Birkelund þarf að sýna það í ár, af hverju Þórsarar voru að sækja hann í Þorpið,“ sagði Sigurjón.

Stymmi klippari, þáttastjórnandi Handkastsins, gengur enn lengra í væntingum sínum til Þórs og telur að allt annað en sæti í úrslitakeppninni verði vonbrigði. Þór endaði í 9.sæti Olís-deildarinnar í fyrra sem nýliði.

„Það er skandall ef Þór fer ekki í úrslitakeppni, með HK, Stjörnuna og Selfoss í þeirri stöðu sem þau eru í. Ég ætla að endurtaka þetta, það er skandall ef Þór fer ekki í úrslitakeppnina,“ sagði Stymmi.

Athygli vekur að veðmálasíðan Coolbet gefur stuðulinn 2,00 á að Þór komist í úrslitakeppnina fyrir mót.

Fyrsta prófraunin kemur strax á laugardaginn þegar Þórsarar mæta Fram í Lambhagahöllinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top